Psalms 99

1Drottinn er konungur orðinn! Þjóðirnar skjálfi. Hann situr uppi yfir kerúbunum, jörðin nötri. 2Drottinn er mikill á Síon og hátt upp hafinn yfir alla lýði. 3Þeir skulu lofa nafn þitt, hið mikla og óttalega. Heilagur er hann! 4Þú ert voldugur konungur, sem elskar réttinn, þú hefir staðfest réttvísina, rétt og réttlæti hefir þú framið í Jakob. 5Tignið Drottin, Guð vorn, og fallið fram fyrir fótskör hans. Heilagur er hann! 6Móse og Aron eru meðal presta hans, Samúel meðal þeirra er ákalla nafn hans, þeir ákalla Drottin og hann bænheyrir þá. 7Hann talar til þeirra í skýstólpanum, því að þeir gæta vitnisburða hans og laganna, er hann gaf þeim. 8Drottinn, Guð vor, þú bænheyrir þá, þú reynist þeim fyrirgefandi Guð og sýknar þá af gjörðum þeirra. 9Tignið Drottin Guð vorn, og fallið fram fyrir hans heilaga fjalli, því að heilagur er Drottinn, Guð vor.
Copyright information for Icelandic